Texti — Um okkur (Af hverju íslensk framleiðsla?)
Af hverju íslensk framleiðsla?
Íslenskir hitaveitupottar eru hannaðir sérstaklega fyrir okkar aðstæður. Ólíkt innfluttum pottum sem eru ætlaðir fyrir mildara loftslag eru NormX pottar gerðir til þess að þola frost, snjó og vind.
Nálægð framleiðslunnar þýðir líka betri þjónustu. Ef eitthvað bíður úrlausnar erum við hér á staðnum — ekki á hinum endanum á heiminum.
Með því að kaupa íslenskt styrkir þú íslenskan iðnað og atvinnulíf. NormX hefur skapað störf á Íslandi í yfir 40 ár og ætlar sér að halda því áfram.
Hitaveitupottar NormX nýta heitt vatn frá hitaveitunni sem þýðir lægri rekstrarkostnað og minni umhverfisáhrif en rafmagnspottar.
Skildu eftir svar