Með kaupum á vörum í gegnum heimasíðu Normx.is samþykkir þú eftirfarandi skilmála:

Almennt
NormX ehf áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Afhending vöru
Allar vörur eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun ef varan er til á lager. Sé varan ekki til mun söluráðgjafi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. NormX ehf ber því enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá NormX ehf til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

Sendingarkostnaður
Allar vörur pantaðar í gegnum netverslun NormX.is bera sendingarkostnað og því er kostnaður við sendingu á miða við verðskrá Íslandspósts, https://posturinn.is/einstaklingar/senda/reiknivel/. NormX ehf sér um að koma vörum til sendingaraðila samkvæmt upplýsingum á pötnunum og nýtir til þær leiðir sem henta best hverju sinni og ber kaupandi því allan kostnað á sendingu.

Verð
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara og að tilboð í netverslun gilda í sumum tilfellum eingöngu fyrir netverslun.

Skattar og gjöld
Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.

Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Lög og varnarþing
Samningar eru í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.