



Wifi Pottastýring – kynningarverð í takmarkaðan tíma.
195.000kr.
WiFi pottastýring frá NormX
Snjallari stjórnun. Meiri möguleikar. Einfaldari notkun.
NormX kynnir nýja kynslóð WiFi pottastýringa sem býður upp á meiri sveigjanleika, fleiri öryggiseiginleika og einfaldari notkun en áður. Einn kosturinn er að snertiskjárinn frá Shelly þarf ekki að vera staðsettur við pottastýringuna. Svo lengi sem skjárinn og stýringin eru tengd sama WiFi neti geturðu haft skjáinn þar sem þér hentar best – til dæmis inni í húsinu, í bílskúrnum eða sumarbústaðnum og stýringin getur verið annarstaðar. Einnig er hægt að seinka lokun á rafmagnskúluloka um allt að 4 mín.
Íslenskt viðmót sem einfalt er að breyta yfir á ensku.
Kemur með 1″ blöndunarloka.
Rafmagnskúloki á tæmingu/fyllingu seldur sér.
- Lýsing
- Viðbótarupplýsingar
- Annað
Lýsing
Ný WiFi pottastýring frá NormX
Snjallari stjórnun. Meiri möguleikar. Einfaldari notkun.
NormX kynnir nýja kynslóð WiFi pottastýringa sem býður upp á meiri sveigjanleika, fleiri öryggiseiginleika og einfaldari notkun en áður.
Einn stærsti kosturinn er að snertiskjárinn frá Shelly þarf ekki að vera staðsettur við pottastýringuna. Svo lengi sem skjárinn og stýringin eru tengd sama WiFi neti geturðu haft skjáinn þar sem þér hentar best – til dæmis inni í húsinu eða sumarbústaðnum og stýringin getur verið annarstaðar.
Íslenskt viðmót
Allt viðmót stýringarinnar er á íslensku, sem gerir notkunina einfalda og þægilega. Fyrir þá sem kjósa annað tungumál er jafnframt hægt að skipta yfir á ensku með einum smelli.
Uppsetning á nokkrum mínútum
Það hefur aldrei verið auðveldara að tengja pottastýringu við appið. Þú þarft aðeins að skanna QR-kóða á stýringunni og appið er komið í símann. Á örfáum mínútum ertu komin(n) í samband og getur byrjað að stjórna pottinum beint úr símanum.
Nýir og gagnlegir eiginleikar
Seinkun á lokun botnloka
Hægt er að stilla seinkun á lokun botnlokans um allt að 4 mínútur. Þetta er sérstaklega hentugt í frosti þar sem vatnið heldur áfram að renna í gegnum botnlokann og getur þannig hjálpað til við að afþýða hann áður en hann lokast.
Við mælum þó ávallt með að botnlokinn sé frostvarinn, til dæmis með hitaþræði, til að lágmarka hættu á frostskemmdum.
Hámarks rennslistími
Nýr öryggiseiginleiki gerir þér kleift að stilla hámarks rennslistíma. Ef potturinn nær ekki tilskildum hita, til dæmis vegna bilunar eða annarra aðstæðna, stöðvast vatnsrennslið sjálfkrafa eftir þann tíma sem þú velur, til dæmis 40 mínútur. Þannig kemur stýringin í veg fyrir að vatn renni endalaust.
Mikið flæði – styttri bið
Allar pottastýringar frá NormX eru afhentar með 1″ blöndunarloka sem tryggir mikið vatnsflæði.
Við eðlilegar aðstæður fyllist til dæmis Grettislaug á um 25 mínútum, sem sparar bæði tíma og eykur þægindi.
Helstu kostir
- Íslenskt viðmót með möguleika á ensku.
- Snertiskjár sem getur verið hvar sem er á sama WiFi neti.
- Uppsetning með QR-kóða á örfáum mínútum.
- Seinkun á lokun botnloka (allt að 4 mín.).
- Stillanlegur hámarks rennslistími.
- 1″ blöndunarloki með miklu vatnsflæði.
- Örugg og einföld stjórnun í gegnum WiFi.
Hönnuð fyrir íslenskar aðstæður
NormX WiFi pottastýringin er þróuð með íslenskt veðurfar og íslenskar aðstæður í huga. Hún sameinar öryggi, einfaldleika og snjalla eiginleika sem gera stjórnun heita pottsins bæði þægilegri og áreiðanlegri.
NormX – hönnuð fyrir íslenskar aðstæður. Snjallari, öruggari og einfaldari stjórnun á heita pottinum.
Viðbótarupplýsingar
| Þyngd | 6 kg |
|---|---|
| Mál | 40 × 60 × 20 sentimetri |





















