








Patio XXS
1.195.000kr.
Til á lager
- Lýsing
- Annað
Lýsing
Patio XXS er listilega vel hönnuð með tilliti til plássnýtingar og þæginda og hentar vel fyrir allt að 3 í einu.
Patio XXS er í málunum 2,04m x 1,87m x 2,41 og nýtur sín vel á palli eða í garðinum.
Innamál eru 1,92m x 1,5m x 2,2m og rúmmál er 5.75m3
Hún er byggð úr 40mm Thermowood bjálkum og er með hertu gleri í gluggum og hurð að framanverðu. 30mm PIR sauna einangrun er í þakinu og þakdúkur að utanverðu. Svartir karmar og málmflasningar í þakköntum. Bekkir eru úr hágæða ölri (alder).
Saunan er hönnuð og smíðuð af Saunasell í Eistlandi og er afhent ósamsett með góðum samsetningarleiðbeiningum með það í huga að geta reist hana á staðnum.
Þyngd: 650kg
Patio XXS kostar frá 1.195.000 kr.
Bakstuðningur og tvöfalt gler er innifalið í grunnverðinu. Val er um hversu mikil lýsing er sett í sánuna, hægt er að fá LED ljósasett með val um fjölda ljósborða.
Bjóðum upp á samsetningu á sánum sé þess óskað.


























